Skilmálar Farbóta
1. Almennt
1.1 Skilmálar þessir gilda um viðskiptasamband Justitia ehf. (hér eftir ,,félagið “), kt. 6909220450 við viðskiptamenn sína.
1.2 Með því að samþykkja þessa skilmála samþykkir viðskiptamaður að vera bundinn af þeim, sem og verðskrá ásamt viðbótarskilmálum sem kunna að gilda um þá þjónustu sem hann hefur valið, auk persónuverndaryfirlýsingar félagsins.
1.3 Mælt er með því að viðskiptamaður kynni sér skilmála þessa, persónuverndaryfirlýsingu og verðskrá félagsins.
1.4 Vakni spurningar um skilmála þessa, er mælt með því að viðskiptamaður beri þær upp í gegnum netfangið farbaetur@teal-gerbil-896825.hostingersite.com og skoði þær upplýsingar sem hafa verið birtar á vef félagsins.
2. Fyrirkomulag þóknunar
2.1 Viðskiptamaður greiðir ekkert gjald ef engar bætur fást upp í kröfu.
2.2 Fáist krafan greidd tekur félagið 25% af greiddum bótum í þóknun.
2.3 Eftirstöðvar eru lagðar inn á reikning viðskiptamanns.
3. Þjónustan
3.1 Þegar viðskiptamaður hefur fyllt út umsóknarform telst hann hafa framselt Farbótum kröfu sína. Með því að samþykkja skilmála þessa framselur viðskiptamaður því kröfu sína á hendur flugfélags til félagsins, sem tekur að sér að innheimta kröfuna í hans nafni.
3.2 Félagið sækir eingöngu staðlaðar skaðabætur bætur samkvæmt reglugerð EB nr. 261/2004.
3.3 Félagið sækir ekki bætur vegna afleidds tjóns sem viðkomandi kann að hafa orðið fyrir í kjölfar atviks sem fellur undir reglugerðina, nema sérstaklega sé um það samið
4. Verðskrá
4.1. Félagið tekur 25% þóknun af bótafjárhæð sem flugfélag greiðir. Endanleg upphæð sem viðskiptamaður fær greidda fer eftir því gengi sem flugfélag eða greiðslumiðlun notar við útborgun kröfunnar. Til skýringarauka yrðu endanlegar bótafjárhæðir samkvæmt gengi í desember 2025 eftirfarandi:
Fáist krafa að fjárhæð 600 evrur greidd, verður greiðsla til viðskiptamanns 66.612 kr.
Fáist krafa að fjárhæð 400 evrur greidd verður greiðsla til viðskiptamanns 44.408 kr.
Fáist krafa að fjárhæð 200 evrur greidd verður greiðsla til viðskiptamanns 22.204 kr.
5. Réttur til að falla frá samningi
5.1 Við undirritun samnings hefur viðskiptamaður 14 daga frá því að falla frá samningi.
5.2 Tilkynning skal berast á netfangið farbaetur@teal-gerbil-896825.hostingersite.com innan 14 daga frá því að krafa var framseld.
6. Meðferð kröfu
6.1 Hafni flugfélag kröfu áskilur félagið sér rétt til þess aðhafast ekki frekar og telst samningnum lokið. Félagið skal upplýsa viðskiptamann um ákvörðun þess efnis um leið og hún liggur fyrir.
6.2 Ef félagið telur tilefni til að kæra höfnun flugfélags á bótaskyldu til Samgöngustofu er slíkt gert í samráði við viðskiptamann.
6.3. Mál er aldrei höfðað nema í samráði við viðskiptamann.
6.4 Hafi viðskiptamaður fengið bætur frá flugfélagi vegna atviks mun félagið ekki sækja kröfu vegna sama atviks, enda hafi bætur í þágu viðkomandi fengist greiddar. Þetta kemur ekki í veg fyrir að krafa vegna sama atviks þar sem annar á í hlut, og hefur ekki fengið bætur greiddar,
verði afgreidd.
6.5 Verði úrskurðar leitað vegna ágreinings um bætur, í samráði við viðskiptamann, skal fyrst leitað til Samgöngustofu.
7. Ábyrgð
7.1 Félagið ber ekki ábyrgð ef meðferð kröfu tekur lengri tíma en væntingar stóðu til um.
7.2 Félagið ber ekki ábyrgð ef bótakrafa fæst ekki greidd.
8. Varnarþing og löggjöf
8.1 Um skilmála þessa gilda íslensk lög. Komi upp ágreiningur vegna skilmála þessa skal gerð tilraun til að leita sátta.
8.2 Beri sáttaumleitanir ekki árangur skal mál höfðað fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
